Bloggið...
13.09.2006 23:12:14 / hreindis

Mynd


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 00:16:26 / hreindis

Lindsay




» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 19:23:09 / hreindis

Ég á smá erfitt með að ákveða mig...

Ég bara veit ekki hvað það er en ég er komin með leið á blog.central.is. Ég prófaði um daginn að nota blogspot en var ekki að fíla það. Núna ætla ég að prófa bloggar.is. Það er nýtt kerfi og mér líst vel á það. Endilega kíkið.

www.hreindis.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 21:16:28 / hreindis

Tónleikar og velheppnuð inntökupróf hjá fólki sem maður þekkir...

Já góðir hálsar

Haldiði ekki bara að ég hafi skellt mér á tónleika í gær. Mamma og pabbi áttu miða á blúshátíðina og við familían skelltum okkur í gærkvöldi. Hitti hana Bryndísi Petru sem var í alveg MEGA-STUÐI!

Tónleikarnir voru vægast sagt FRÁBÆRIR...Veit ekki hvort að þið náðuð að sjá dívurnar sem voru að syngja í Kastljósinu um daginn. Þetta eru alveg svakalegar konur. Stórar og miklar en fyrst og fremst alveg stórfenglegar söngkonur. Komu fram í alveg svaðalegum glimmerkjólum og allir stælarnir...hérna sjáiði svo myndir af þeim.

Deitra Farr

Grana' Louise

Zora Young

Ég hef nú svo sem ekki mikið meira að segja ykkur. Ég fór í ferð með pabba áðan. 14 túristar í hestaferð. Frekar svona kalt samt. En mín lét það ekki á sig fá og ég klæddi mig bara betur. Það var mjög hressandi eiginlega bara að fara út í þennan kulda.

En þar sem að þetta blogg stefnir í að verða leiðigjarnt skýrslublogg þá ætla ég bara að hætta hér.

En ég vil óska henni Þórunni Örnu innilega til hamingju með inngönguna í leiklistina. Stelpan bara komin inn. Dugleg...ég er ekkert smá ánægð með hana. Hlakka líka ekkert smá til að fara á tónleikana hennar í þarnæstu viku.

Þórunn er þessi ljóshærða á báðum myndunum...


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 01:06:51 / hreindis

Gígja í Söngkeppninni...

Já þar sem að ég tók þá ákvörðun að nota þetta bloggsvæði áfram þá var ekki út vegi að blogga hér.

Komið páskafrí, hversu yndislegt er það? Ég elska frí...

En ég og Tinna vorum á Söngkeppni framhaldsskólanema í dag. Það var virkilega gaman. Hún Gígja var að keppa, en hún er með mér í söngtímum í Tónvinnsluskólanum. Frábær söngkona þar á ferð og hún sannaði það algerlega í dag og kvöld. Stóð sig alveg með stakri prýði.

Ég (sem og flest allir aðrir) vorum því meira en lítið sjokkeruð þegar tilkynnt var að hún ætti ekki að komast áfram í úrslit. En það var nú eitthvað grunsamlegt við málið. Ég var ekki alveg að kaupa þessu úrslit sko. Þegar kynnarnir voru að lesa upp þá skóla sem fara skyldu áfram í úrslit þá áttu í mesta basli við að lesa úr einni línunni en tilkynntu svo að það væri FSU sem stæði þar. En seinna kom í ljós að það var víst FS (skólinn sem Gígja söng fyrir) svo að hún var bara komin í úrslit. Ég var svoooo ánægð. Hún átti það svo innilega skilið. Ég var bara ferlega stolt af henni :D Haha...hér er mynd...

Úrslitin voru á margan hátt undarleg, bæði lögin sem komust í úrslitin og þeir sem fengu verðlaunasætin og unnu vinsældarkosninguna. Ekki var allt slæmt þó en þetta fer svo mikið eftir smekk manna að það eru aldrei allir sáttir og í þessu tilfelli mun það vera ég sem er ekki alveg sátt. En svona er þetta...þetta var samt voða gaman.

Ég er að fara að þjóna í fermingarveislu á morgun með Tinnu. Það verður bara stuð held ég. Fermingarbarnið er hún Birna, dóttir Daða sem stjórnar lúðrasveitinni sem ég er í.

En ég kveð að sinni, mun væntanlega stela myndum frá keppninni hjá henni Tinnu og þær koma því inn von bráðar.

Þangað til næst - lifið heil!


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 00:25:45 / hreindis

ATH - nýtt bloggsvæði

Ég er komin með leið á þessu og ætla að prófa annað bloggkerfi í smá stund og sjá hvernig mér líkar það...

www.leikkona.blogspot.com

Endilega kíkið og kommentið þar á hvort ykkur finnst betra!

Kv. Hreindís


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 08:47:41 / hreindis

Afmælisbarnið ÉG!

Já, ég er 17 ára í dag! Alltaf gaman að eiga afmæli! Tvær vinkonur mínar (Petra og Ágústa) komu með köku í skólann sem við ætlum að borða í matarhléinu á eftir. Alltaf gaman þegar vinir manns gera eitthvað svona fyrir mann!

Vildi líka segja ykkur frá því að ég er ,,Maður dagsins" í DV í dag. Það hringdi í mig blaðamaður í gær og bað mig um að koma í viðtal vegna þess að ég á afmæli á þessum líka ágæta degi, 1.mars, sem er þekktur sem bjórdagurinn vegna þess að á þeim degi, meira að segja sama ár og ég fæddist, var 74. ára löngu sölubanna aflétt af áfengum bjór! Skemmtilegt nokk, og ég drekk ekki. Svo er líka öskudagur í dag. Ég hef ekki átt afmæli á öskudegi síðan ég varð 6 ára held ég. Rosalega skemmtileg minnig frá þeim afmælisdegi!

Hérna er svo stjörnuspáin mín af vef tímaritsins Orðlaus. Ég get samt ekki beint kallað þetta spá, þetta eru meira svona fullyrðingar um fiskana út frá fæðingartíma.

Stjörnuspá

Fiskurinn
(20. febrúar - 20. mars)

Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera' á eitt ákveðið. Hann er stórhuga.

En ég kveð að sinni í afmælisskapi!


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 10:39:23 / hreindis

Afmælisblogg!

Heil og sæl!

Þetta er nú ekkert skýrslublogg í dag, ónei, ónei! Þetta er blogg til heiðurs einni af mínum frábæru vinkonum! Og það er hún...

SÓLEY!

Hún á afmæli í dag þessi elska og því er ég að blogga henni til heiðurs. 17 ára í dag stúlkan! Til hamingju með daginn elsku Sóley, vonandi nýturðu dagsins í dag og auðvitað vildi ég óska þess að allir þínir dagar væru fullir af hamingju!

Hérna eru svo myndir af þessari elsku...

 

 

 

Sóley í miðjunni!

 

 

 

Mundu bara að mér mun alltaf .þykja vænt um þig Sóley!

Kv. þín Hreindís










» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 09:30:09 / hreindis

Lang blogg...

Sæl öll

Skrítið hvað ég veit aldrei hvernig ég á að byrja bloggfærslur. Heil og sæl, sæl öll eða bara hæ? Ég veit það ekki...kannski á maður bara að henda sér beint út í bloggið án þess að vera eitthvað að heilsa. Ég veit það ekki.

Í dag er miðvikudagurinn 22. febrúar sem þýðir tvennt. Amma mín, hún Dísa, á afmæli í dag, og ég óska henni að sjálfsögðu til hamingju. En það þýðir líka að í dag byrja lagningardagar í skólanum. Það eru eiginlega svona árshátíðardagar MH. Það eru þrír dagar þar sem við förum á allskonar fyrirlestra og námskeið. Dagurinn minn byrjar klukkan 10, ég fer ásamt stelpunum á fyrirlestur frá Stígamótum. Held það sé um kynferðisofbeldi og afleiðingar þess, það verður ábyggilega fróðlegt.

En svo er aðal fyrirlesturinn og sá sem ég er búin að hlakka mest til klukkan 1 í dag. Það er Eurovision fyrirlesturinn hjá Páli Óskari. Það verður án efa geðveikt gaman. Hann náttúrulega veit allt um keppnina og er bara algjört nörd!!! Svo erum ég og Gróa að pæla í að kíkja á Ræðukeppni milli kennara í skólanum og Morfís-liðs MH á eftir en það er í skoðun.

Söngvakeppnin er síðan á föstudaginn og ætli maður kíki ekki á það. Ég veit það ekki, það verður bara að fara eftir stemmningunni. Fer líka eftir því hvort að stelpurnar ætla eða ekki!

Svo er árshátíðin í kvöld og það verður bara stuð-stuð-stuð...Milljónamæringarnir leika fyrir dansi. Við ætlum allar stelpurnar (ég, Ágústa Ósk, Svala Kristín, Gróa, Hafdís Sara, Soffía, Guðrún Selma, Petra og Helga ásamt tveimur gestum sem eru Mosó-gellurnar Tinna Hrönn og Guðrún) að hittast heima hjá Hafdísi og elda saman og borða og spjalla og fara svo á ballið, tjah...förum allar á ballið nema Svala sem ákvað að vera félagsskítur og koma bara að borða með okkur en ekki fara á ballið. Það verður reyndar smá stress á mér vegna þess að ég er í söngtíma til hálf sjö en ég er hvort sem er alveg búin að ákveða í hverju ég ætla að vera svo að ég þarf ekkert langan tíma til undirbúnings.

En út í aðra sálma (eins og Steinunn myndi segja...) Ég fór á Verzló-söngleikinn ,,Á tjá og tundri” í gær og það var bara alveg ágætist afþreying. Þetta var svona típísk Verzló sýning þar sem söguþráðurinn var að hinu fullkomna pari var stíað í sundur á brúðkaupsdaginn með allskonar glæpamálum, framhjáhaldi, steggjaveislu, lesbískri vinkonu sem var hrifin af brúðinni og allt þar fram eftir götunum. Árni Beinteinn litla krútt fór með mér, og við vorum sammála um að dansararnir hefðu verið það besta í þessari sýningu, svo voru reyndar nokkrir strákar þarna alveg að gera sig í sínum hlutverkum. Yfirleitt þeir sem léku fávitana. En eins og ég sagði þá var þetta ágætist skemmtun. Nauðsynlegt að sjá eitthvað svona létt inn á milli. Það er líka alltaf svo mikil stemmning í svona sýningum. Það var full rúta af skólakrökkum í salnum og þau héldu uppi alveg svakalegri stemmningu. Alltaf klappandi og öskrandi. Alltaf gaman að því...

Áfram um leikhús, um síðustu helgi var nefnilega Hafið bláa, þar sem ég er á ljósunum, frumsýnt. Það gekk rosalega vel og allir alveg himinlifandi. Við fengum líka hef ég heyrt alveg fína dóma, og talandi um fína dóma: Til hamingju með dómana fyrir Hungur Þórdís mín og Gummi, þetta var sko alveg algjörlega verðskuldað hrós sem þið voruð að fá þarna í mogganum. Talað um augljósa hæfileika höfundar verksins og svona, það er alveg satt og rétt. En ég minni fólk bara enn og aftur á að láta þessa sýningu alls ekki fram hjá sér fara, myndin hér fyrir neðan er linkur inn á síðu verksins.

 

 

 

Síðasta helgi var sko alveg geðveiki. Þrífa á föstudeginum fyrir Eurovision sem var á laugardeginum, vakna klukkan sjö á laugardeginum, fara í Austurbæ, þar voru smá æfingar svo generalprufa (sem gekk geðveikt vel) svo fengum ég og Agnes far hjá henni Ástu Bærings á ,,fína” bílnum sem hún var á, en á ekki (það skal vera alveg á hreinu - hún á ekki bílinn), vinna fram á kvöld á Eurovision og fara svo í smá stund í saumaklúbb til Sigrúnar en ég var ekki lengi, fann það hvað ég var orðin þreytt um leið og ég settist niður, enda MJÖG langur dagur að baki. Sunnudagurinn var svo aðeins rólegri, þá fór ég klukkan hálf 11 til Agnesar og mamma hennar skutlaði okkur niður í Austurbæ þar sem að við vorum bara að koma okkur í gírinn fyrir frumsýninguna sem var klukkan hálf tvö og gekk bara vægast sagt vel. Allt frábært og æðislegt, leikararnir frábærir og æðislegir og stemnningin líka. Þvílík orka og gleði bara...Hlakka bara til næstu sýningar. Þegar maður vinnur svona tæknivinnu sjálfur þá áttar maður sig á því hvað ljósamenn og aðrir tæknimenn eru ótrúlega mikilvægur þáttur í sýningunni. Leikarar eru gjarnir á að gleyma því. Ég skal sko aldrei aftur gera það. Alltaf þegar ég leik í einhverju eftir þetta þá skal ég sko alltaf vera þakklát fyrir tæknifólkið, þau eru ekki síður mikilvægur þáttur af sýningunni heldur en við sem stöndum á sviðinu. Munið það alltaf...

 

 

Um kvöldið á sunnudeginum átti svo að vera lúðrasveitaræfing en Agnes og Sigrún redduðu allri hljómsveitinni í leikhús í staðinn fyrir æfinguna, Við sáum sýninguna sem þær eru í í Leikfélagi Mosfellssveiar, það heitir Í beinni og var bara alveg mjög skemmtilegt.

En ég veit svo sem ekki hvort ég hef eitthvað meira að segja ykkur. Ég gleymdi myndavél svo ekki vænta þess að fá neinar skemmtilegar myndir frá árshátíðinni eða fyrsta lagningardeginum, kannski man ég eftir henni á morgun, hver veit?

Ég kveð þá bara að sinni

Kv. Hreindís Ylva


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 14:54:35 / hreindis

Allt og ekkert að gerast, samt aðallega svona ALLT!

Heil og sæl

Kominn föstudagur og helgin framundan...Ahh...yndilslegt, þetta verður reyndar alveg BRJÁLUÐ helgi hjá mér og vikan er búin að vera brjáluð, hérna er þetta smá svona punktaformi...

Mánudagur

·          Skóli

·          Söngskóli

·          Æfing í Hafið bláa

Þriðjudagur

·          Skóli (Heimspekipróf – rugl erfitt)

·          Söngskóli

Miðvikudagur

·          Skóli

·          Flauta

·          Æfing í Hafið bláa

·          Söngtími

·          Svo heim að læra fyrir sögupróf.

Fimmtudagur (í gær)

·          Skóli (Sögupróf, gekk vel)

·          Heim að læra

·          Fór ásamt Árna Beinteini krútti og mömmu hans að sjá Hungur eftir Þórdísi Elvu og Gummi leikstýrir. Það var æðislegt. Það byrjar voða venjulega en svo sökkva persónurnar alltaf neðar og neðar og gjörsamlega draga mann með sér (það er hrós!). Maður verður alveg skíthræddur um stelpurnar og óttast það sem þær munu gera næst. Flottar tengingar milli persóna og maður áttaði sig ekki á öllum fyrr en í síðustu setningu leikritsins. En þá tendist líka svo margt. En ég vil ekki segja of mikið, fariði bara að sjá þetta, æðislegt verk og vel skrifaði, ég óska Þórdísi minni bara innilega til hamingju með þetta allt saman. Þú ert æði Þórdís og svo klár! Þessi mynd sem er hér fyrir neðan var einmitt auglýsingin frá www.blog.central.is þegar ég kom inná síðuna mína og ég var ekkert smá ánægð að vera að auglýsa verkið hennar Þórdísar. Með því að klikka á myndina komist þið inná síðu verksins. Þar er margt fróðlegt að skoða.

 

 

Fyrir þá sem hafa áhuga er miðasala í Borgarleikhúsinu, í síma 568-8000 og á www.midi.is. Ég hvet ykkur til að láta þetta ekki fram hjá ykkur fara.

Svo er ég búin að vera í skólanum í dag og er svo að fara beint eftir skóla út á Granda að þrífa í Eurovision-höllinni. Við höfum vanalega gert það á laugardagsmorgnum en núna eru svo margir keppendur að við náum ekki að klára áður en þau fara að streyma inn og byrja að æfa. En það verður bara stuð, við verðum þarna ég og Emma og Agnes, besta vinkona Emmu ásamt fleirum.

Svo er planið fyrir morgundaginn ansi þétt. Byrjar klukkan hálf níu í fyrramálið með rennsli í Hafinu bláa. Svo eftir það er generaæprufa. Það gengur vonandi bara sem best. En ég er ljósamaður í þeirri sýningu fyrir þá sem ekki vita. Eftir generalprufuna þurfum við nokkur að bruna beinustu leið út á Granda. Þau eru alveg sex í Hafinu bláa sem eru að keppa í Eurovision á einhvern hátt(Íris María, Þórdís og Ásta Bærings að dansa, Matti Matt að syngja og svo er Selma með atriðið hennar Silvíu og Svanhvít með búningana í einu atriði). Brjáluð keyrsla á okkur þennan daginn því ég er náttúrulega að vinna á keppninni allan daginn. En það verður bara gaman. Við verðum þar eitthvað frameftir kvöldi og svo fer ég í saumaklúbb til Sigrúnar. Næ reyndar bara restinni en það er alltaf gaman að hitta stelpurnar!

Svo er frumsýning á sunnudaginn á Hafið bláa og það verður gaman. Þetta er rosalega flott sýning sem ég mæli með. Það hafa held ég allir gaman að þessu, ég allavega skemmti mér konunglega á fyrsta rennslinu.

En ég held ég fari nú að hætta þessu, orðið ansi langt skýrslublogg hjá mér. Læt fljóta hérna með smá sem ég heyrði í heimspeki tíma.

Maðurinn er eins og leikari sem hefur verið kastað inn á sviðið í miðri sýningu án handrits og án þess að vita hvað er verið að leika eða hvaða hlutverk hann á að fara með. Hann veit hvorki hvað hann á að segja né hvað hann á að gera. Hann er ekki einu sinni viss um hvort leikritið hafi yfirleitt verið skrifað, hvort það sé alvara eða einn allsherjar brandari. Hann verður sjálfur að taka ákvörðun um að vera eitthvað, heigull eða hetja – vekja sorg eða gleði. Að öðrum kosti verður hann að yfirgefa leiksviðið tafarlaust. Jafnvel það er val á ákveðnu hlutverki. En ekki undir neinum kringumstæðum munum við komast að um hvað allt snérist.

Þetta er beint upp í heimspekisögu en byggt á heimspekingnum Sartre.

Ég kveð þá að sinni, njótið helgarinnar og munið að kjósa rétt í Eurovision (900-2015 :D ÁFRAM REGÍNA – svo styð ég auðvitað Bjartmar minn líka!)

Kv. Hreindís


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 01:06:33 / hreindis

Úrslit!

Jæja, laugardagur búin og eiginlega bara kominn sunnudagur.

Ég er að passa núna, er sem sagt ekki heima og er að hugsa um að fara að skella mér í háttinn. Klukkan orðin eitt! Ég var að vinna niðri í Austurbæ áðan og verð kannski á morgun líka, veit það ekki, ég er að fara í próf í næstu viku svo að ég er að hugsa um að vera frekar heima að læra og fara svo á mánudaginn í Austurbæ.

En ég vona innilega að allt hafi farið óskum á forsýningunni á Ronju sem var áðan og Árni minn var svo spenntur fyrir þó að hans hópur forsýni hvorki né frumsýni og ég mun hugsa til þeirra á frumsýningartíma á morgun.

En hérna koma úrslitin í skoðanakönnuninni sem ég hef verið síðustu vikuna. Aldrei jafn mikil þáttaka í skoðanakönnun hjá mér og ég er hæstánægð. 138 tóku þátt sem er sennilega jafn mikið ef ekki meira heldur en í öllum hinum sem ég hef haft til samans. Enda umdeilt málefni hér á ferð og vægast sagt óvænt úrslit, en samt ekki þar sem að Bjartmar á marga stuðningsmenn á þessar síðu (*hóst* Annie-krakkar *hóst*) en engu að síður á Silvía greinilega marga líka...



Þau voru sem sagt alveg hnífjöfn, Bjartmar og Silvía.

En hér set ég punkt og er farin að sofa.

Kv. Hreindís!


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 22:21:04 / hreindis

Leikur

Svona ,,kitl-leikur" eða eitthvað svoleiðis sem hún Fanney skoraði á mig að leysa og hérna er þetta...njótið vel!

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir æfina:

  • Unlingavinnan
  • Leika, syngja og dansa í söngleiknum Annie og kenna á leiklistar/söng námskeiðum á vegum fyrirtækisins sem setur upp Annie. S.s. leikkona og leiklistarkennari.
  • Pössun
  • Hestaleigan Íslenskir ferðahestar

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  • The Sound of music
  • Singin' in the rain 
  • Annie 
  • Ávaxtakarfan (jájá...ég veit)

 Staðir sem ég hef búið á:

  • Víðigrund (þar sem ég bý núna)
  • Víðigrund (a.k.a. Rauða húsið)
  • Urðarholt, Mosfellsbæ

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • Nágrannar
  • Flestir svona hæfileikaþættir, Idol Stjörnuleit, American Idol, norska Idol, Rock Star INXS, So you think you can dance og þess háttar...
  • Strong Medicine
  • Sex and the City, var ekkert hrifin af þeim fyrst en svo elska ég þá núna...

Verð svo að viðurkenna að ég er húkt á Latabæ...

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • London (uppáhalds borgin mín)
  • Ítalía
  • Slóvenía 
  • Svo þessi típísku; Danmörk, Noregur og Svíþjóð...

Fjórar bækur sem að ég les oft:

  • Emmu-bækurnar
  • Harry Potter
  • Eurovision bókin mín
  • Ævintýri H.C Andersens, aðallega Litla stúlkan með eldspýturnar

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera núna:

  • Í Oakville í St. Louis, Missouri-fylki í Bandaríkjunum að heimsækja Molly, Lindsay og Kaleigh
  • Í leikhúsi að sjá eitthvað af þessum milljón sýningum sem mig langar að sjá
  • Í Austurbæ með meðleikurum mínum
  • Á einhverri sjúklega flottri strönd í sólbaði að slappa af.

Fjórir  sem að ég skora á að gera þetta eru:

  • Petra
  • Íris Anna 
  • Guðrún Gróa
  • Steinunn

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 22:51:03 / hreindis

Veik - AFTUR!

Góða kvöldið...

Ég sit hérna í herberginu mínu með American Idol í gangi! Alltaf gaman að því.

Á laugardaginn var þriðji undanúrslitaþátturinn í Eurovision og sem fyrr var ég að vinna. Og ég var að fatta eitt, haldiði að undirrituð sé ekki bara á credit listanum! Ég sá það bara fyrir tilviljun þegar ég var að labba inn í salinn á general prufunni þá var listinn akkúrat á rúlla.

En Bjartmar og Íris María elskur komust áfram. Þau stóðu sig æðislega vel og ég var ekkert smá stolt af þeim. Bjartmar söng lagið Á ég? eftir Örlyg Smára og Íris dansaði með honum, hún er þessi síðhærðari.

Svo komst Dísella líka áfram og mér persónulega fannst hún æðisleg. Silvía Nótt komst líka áfram (SÖRPRÆS!) En nánari upplýsingar um keppnina má finna á Eurovision síðunni minni og Svölu - www.folk.is/eurovision1

Ég var veik heima í dag, eins og síðasta þriðjudag. Ég var fárveik í nótt og í morgun svo ég fór ekki í skólann en ég fer á morgun, verðum að fara að stúta þessu helv... söguverkefni. :/ Hata þetta verkefni! Hlakka samt til að fara í skólann og hitta stelpurnar! Það er svo gaman hjá okkur í skólanum, við erum allar frekar ólíkar og skemmtileg blanda, afreksmenn í frjálsum íþróttum svo Ágústa, Svala básúnustelpa, ég og Petra sem er dansari!

En ætli ég sé ekki bara farin að sofa eftir þetta ansi skemmtilega skýrslublogg!

Kv. Hreindís

P.S. Annie-fólk ég sakna ykkar brjálæðislega og get ekki beðið eftir næsta laugardegi!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 23:53:03 / hreindis

Niðrstöður Eurovision-skoðanakannanar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 17:22:26 / hreindis

Veik

Sæl

Ég fór ekki í skólann eða söngskólann í dag vegna þess að ég er veik. Það er ótrúlega glatað að vera veik. Ég man að alltaf þegar ég var lítil og nennti ekki að vakna snemma vonaði ég alltaf að ég yrði veik svo ég fengi að vera bara heima. En svo þegar ég varð veik var það ömurlega leiðinlegt. Núna er þetta ennþá leiðinlegra vegna þess að mætingin í skólanum fær að finna fyrir þessu. Það er ekkert veikindafrí, ónei ónei, maður fær bara fjarvist.

En annars hefur ekkert bitastætt gerst nema bara að ég var aftur að vinna á Eurovision síðasta laugardag, Tinna Hrönn fór með mér af því að Agnes komst ekki. Það var stuð.

Ég sá sætasta sjónvarpsþátt sem ég hef á ævi minni séð í dag. Hann hét: ,,50 cutest child stars - All grown up". Það var verið að sýna brot af barnastjörnum frá því þau voru lítil og þetta var bara sætt. En ég var ekkert smá fúl hverjir voru í fyrsta sæti - Simpsons krakkarnir! Glatað, þau eru ekki til og það er fullorðið fólk sem talar fyrir þau! Mér persónulega finnast Shirley Temple eða Dakota Fanning lang mestu krúttin!

Svo er foreldrafundur í Annie í kvöld þar sem á að ræða um framhaldið. Ég er ótrúlega forvitin að vita hvað kemur út úr þessum fundi vegna þess að ég hef ekki grænan um hvert við stefnum. Ég, Emma og Steinunn fáum nefnilega ekki að fara á fundina með fullorðnu leikurunum. Við erum ekki ,,leikarar". Fuss...samt æfðum við jafn mikið ef ekki bara meira en þau! Og gerum nákvæmlega jafn mikið í sýningunni. Já, svona getur lífið ver ósanngjarnt.

En ég er að hugsa um að halda áfram að gera ekki neitt núna, ég er búin að vera vægast sagt mjög einangruð í dag, það hefur enginn hringt, ekki einu sinni sölumenn eða einhver að spyrja eftir pabba eða mömmu. Bara bókstaflega enginn!

Kv. Hreindís


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5