Jæja, laugardagur búin og eiginlega bara kominn
sunnudagur.
Ég er að passa núna, er sem sagt ekki heima og er að hugsa um að
fara að skella mér í háttinn. Klukkan orðin eitt! Ég var að vinna
niðri í Austurbæ áðan og verð kannski á morgun líka, veit það ekki,
ég er að fara í próf í næstu viku svo að ég er að hugsa um að vera
frekar heima að læra og fara svo á mánudaginn í Austurbæ.
En ég vona innilega að allt hafi farið óskum á forsýningunni á
Ronju sem var áðan og Árni minn var svo spenntur fyrir þó að hans
hópur forsýni hvorki né frumsýni og ég mun hugsa til þeirra á
frumsýningartíma á morgun.
En hérna koma úrslitin í skoðanakönnuninni sem ég hef verið
síðustu vikuna. Aldrei jafn mikil þáttaka í skoðanakönnun hjá mér
og ég er hæstánægð. 138 tóku þátt sem er sennilega jafn mikið ef
ekki meira heldur en í öllum hinum sem ég hef haft til samans. Enda
umdeilt málefni hér á ferð og vægast sagt óvænt úrslit, en samt
ekki þar sem að Bjartmar á marga stuðningsmenn á þessar síðu
(*hóst* Annie-krakkar *hóst*) en engu að síður á Silvía greinilega
marga líka...
Þau voru sem sagt alveg hnífjöfn, Bjartmar og Silvía.
En hér set ég punkt og er farin að sofa.
Kv. Hreindís!